Íþróttamiðstöð og tjaldstæði Þingeyri - Sundlaugarverðir

Íþróttamiðstöðin á Þingeyri auglýsir eftir sundlaugarvörðum sem jafnframt sinna ýmsum störfum við tjaldstæðið á Þingeyri. Um er að ræða 100% störf í vaktavinnu. Störfin eru tímabundin frá byrjun júní fram í septembermánuð eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2023.

Helstu verkefni og ábyrgðasvið: Afgreiðsla, þrif, öryggisvakt í sundlaug og líkamsrækt, eftirlit með búnaði og fleiru. Starfsmaður sinnir einnig þjónustu og rukkun á tjaldsvæði.

Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera í líkamlega góðu formi til að geta staðist hæfnispróf í björgun, þarf að hafa framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hafa gaman af því að veita þjónustu. Dugnaður og iðjusemi er mikilvægur eiginleiki í starfinu.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við VerkVest/Kjöl.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorbjörg Gunnarsdóttir forstöðumaður í síma 450-8470 eða í gegnum tölvupóst á netfangið sundth@isafjordur.is. Umsóknir sendist á fyrrgreint netfang og með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?