Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar - Sundlaugarverðir

Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar auglýsa eftir sundlaugarvörðum í sumarstörf við sundlaugarnar á Ísafirði, Suðureyri og Flateyri. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf í vaktavinnu. Störfin eru tímabundin til loka ágústmánaðar 2022.

Helstu verkefni og ábyrgðasvið: Afgreiðsla, þrif, laugarvarsla, eftirlit með búnaði og fleiru.

Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera orðin(n) 20 ára og í líkamlega góðu formi til að geta staðist hæfnispróf í björgun, þarf að hafa framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hafa gaman af því að veita þjónustu. Dugnaður og iðjusemi er mikilvægur eiginleiki í starfinu.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við VerkVest/FOSVest.

Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2022. Tilgreina skal í umsókn um hvaða starfsstöð er að ræða.

Nánari upplýsingar um störfin á Ísafirði, Suðureyri og Flateyri veitir forstöðumaður íþróttamannvirkja, Grétar Helgason, í síma 450-8488 eða í gegnum tölvupóst á netfangið gretarhe@isafjordur.is. Umsóknir sendist á fyrrgreint netfang og með þeim skal fylgja ferilskrá.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?