Hvesta Hæfingarstöð – Stuðningsfulltrúar

Hvesta hæfingarstöð sem er vinnu og virknimiðað úrræði fyrir fatlað fólk auglýsir laus til umsóknar störf stuðningsfulltrúa. Um er að ræða störf sem getur bæði verið í tímavinu og í föstu starfshlutfalli sem er umsemjanlegt. Störfin eru unnin á dagvinnutíma á virkum dögum. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
  • Önnur tilfallandi störf samkvæmt starfslýsingu

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi

 

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (FosVest/VerkVest).

Umsóknum skal skilað til Sólveigar Erlingsdóttur, forstöðumanns í Hvestu hvesta@isafjordur.is Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2022. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

 

Nánari upplýsingar veitir Sólveig í síma 691-0123 eða í gegnum ofangreint netfang.

 

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?