Heilsuleikskólinn Laufás, Þingeyri – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Heilsuleikskólinn Laufás á Þingeyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf leikskólakennara. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari og er þá um tímabundna ráðningu að ræða til 31. júlí með möguleika á framlengingu. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða mjög skemmtilegt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi. Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2023.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Þess má geta að hjá leikskólum Ísafjarðarbæjar hefur þegar verið gerð vinnustytting um 4 klst á viku miðað við 100% starf.

Umsóknir skulu sendar til Ingu Jónu Sigurðardóttur leikskólastjóra á netfangið ingasi@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Inga, í síma 450-8270 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?