Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Yfirlæknir á sjúkradeild á Ísafirði

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að sinna starfi yfirlæknis á Sjúkradeild (blönduð bráða- og legudeild) Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Starfið hentar lækni með sérfræðiviðurkenningu í heilsugæslulækningum eða öðrum sérgreinum, svo sem lyflæknisfræði.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 250 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (www.hvest.is).
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.

Helstu verkefni og ábyrgð

 

  • Almenn störf læknis á Sjúkradeild (legudeildarhluta) og eftir atvikum göngudeildum á heilsugæslu og hjúkrunarheimilum.
  • Möguleiki er á að skipuleggja starfið í samræmi við sérþekkingu umsækjenda.
  • Vaktþjónusta og kennsla.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum, teymisvinnu og þróun í samvinnu við yfirlækni.

Læknar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum lækna og viðkomandi deildar.

Hæfniskröfur

 

  • Íslenskt lækningaleyfi. Sérfræðiviðurkenning er kostur.
  • Framúrskarandi samskiptafærni og góð leiðtogafærni.
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptafærni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Drifkraftur, þrautseigja og árangursmiðað viðhorf.
  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda. Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.

Sjálfstæðið er mikið í starfi en baklandið gott. Tækin eru ný og uppbyggingarhugur í fólki. Læknar sinna einnig kennslu og þjálfun læknanema.

Utan vinnu eru lífsgæðin mikil. Tækifærin til útivistar eru allt um kring, enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.

Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar. Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.12.2022

Nánari upplýsingar veitir

Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga - susannaba@hvest.is - 450 4500

Smelltu hér til að sækja um starfið

Er hægt að bæta efnið á síðunni?