Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Starfsmaður í býtibúr
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að jákvæðum og sjálfstæðum einstakling í störf í býtibúr á Ísafirði. Um er að ræða tímavinnu sem unnin er á milli 17:00 og 19:00 alla daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið heyrir undir ræstingadeild og felst í umsjón með býtibúri.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 250 manns en stofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Í ræstingardeildinni starfar 7 manna öflugur og jákvæður hópur. Störfin í deildinni eru fjölbreytt enda er vinnustaðurinn stór og líflegur.
Hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
- Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi
- Metnaður og ábyrgð í starfi
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
Starfshlutfall er 0% - tímavinna
Umsóknarfrestur er til og með 23.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Amonrat Phothiya, Ræstingastjóri - amonratphothiya@gmail.com - 8679932