Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Sjúkraþjálfari á Ísafirði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa á Ísafirði. Hér gefst kjörið tækifæri til að öðlast breiða þekkingu innan fagsins, vinna með skemmtilegu fólki og verða hluti af góðri liðsheild.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Ísafjarðarbær er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Unnið er með breiðum skjólstæðingahópi og er meðferð veitt á göngudeild og legudeildum sjúkrahússins.

Mörg tækifæri eru til aukinnar heilsueflingar svo sem með námskeiðum og fræðslu fyrir einstaklinga og hópa.

Helstu verkefni eru:

  • Skoðun, mat og meðferð
  • Skráning og skýrslugerð
  • Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
  • Þátttaka í þverfaglegum teymum
  • Þátttaka í fagþróun

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Embætti landlæknis
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Faglegur metnaður

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis. Æskilegt er að störf hefjist 1. janúar 2022 eða eftir nánara samkomulagi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.12.2021

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir - sigridur.lara.gunnlaugsdottir@hvest.is - 450 4500
Hanna Þóra Hauksdóttir - hanna@hvest.is - 450 4500

Smelltu hér til að sækja um starfið

Er hægt að bæta efnið á síðunni?