Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Innkaupastjóri

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða kraftmikinn og jákvæðan einstakling í starf innkaupastjóra. Starfið heyrir undir fjármálasvið stofnunarinnar og er með starfsstöð á Ísafirði.

Þekking og/eða reynsla af innkaupum, útboðum og vörustjórnun er mikilvæg í starfi innkaupastjóra ásamt góðri hæfni í mannlegum samskiptum. Um 100% starf að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með innkaupum stofnunarinnar
  • Skilvirk innkaup, viðhald og mótun innkaupaferla og innleiðing þeirra
  • Samskipti við birgja og flutningsaðila
  • Eftirlit með birgðastöðu og gerð innkaupaáætlana
  • Innkaupasamningar og útboð
  • Samskipti við birgja og flutningsaðila
  • Öryggismál, gæðaúttektir, eftirfylgni
  • Samskipti við Framkvæmdasýsluna-Ríkiseignir og ýmis verkefni sem tengjast fasteignum í öllu heilbrigðisumdæminu, þ.m.t. íbúðarhúsnæði fyrir afleysingastarfsfólk
  • Skilgreining árangursmælikvarða í samræmi við stefnu stofnunarinnar
  • Umbótaverkefni, t.d. tengd grænum skrefum, skýrslugerð og greiningar
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi eða reynsla af sambærilegu starfi
  • Þekking og/eða reynsla af innkaupum, útboðum og vörustjórnun
  • Þekking á heilbrigðisþjónustu er kostur
  • Reynsla af DK innkaupakerfinu er kostur
  • Góð tölvukunnátta
  • Gerð er krafa um nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Sjálfstæði, frumkvæði og þjónustulund
  • Framúrskarandi samskiptafærni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Í skoðun eru skipulagsbreytingar í ræstingu á Ísafirði. Mögulegt er að innkaupastjóri fái mannaforráð yfir 2-4 starfsmönnum í tengslum við það.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023

Nánari upplýsingar veitir

Elísabet Samúelsdóttir, Fjármálastjóri - elisabet.samuelsdottir@hvest.is - 450 4500

Smelltu hér til að sækja um starfið

Er hægt að bæta efnið á síðunni?