Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Hjúkrunarfræðingur á bráða- og legudeild

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða hjúkrunarfræðing til starfa á Ísafirði. Um er að ræða 70-100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingur sinnir almennum hjúkrunarstörfum á blandaðri akút legudeild. Deildin sinnir auk þess sængurkonum og nýburum utan dagvinnu ljósmóður, annast göngudeild fyrir blóðskilun, krabbameinslyfjagjafir og aðrar sérhæfðar lyfjagjafir auk þess að aðstoða við slysamóttöku á slysadeild utan dagvinnutíma. Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn hjúkrunarfræðing sem langar að breyta um umhverfi. Þetta er einnig kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun.

Á deildinni starfar öflugur hópur um 25 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 250 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.

Boðið er upp á fjölbreytt starf í örvandi starfsumhverfi og góðum starfsanda.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.

Möguleiki er á að stofnunin aðstoði við öflun íbúðarhúsnæðis. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.06.2021

Nánari upplýsingar veitir

Rannveig Björnsdóttir - rannveig@hvest.is - 450 4500

Smelltu hér til að sækja um starfið

Er hægt að bæta efnið á síðunni?