Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Framkvæmdastjóri lækninga á Ísafirði

Við leitum að drífandi einstaklingi til að sinna starfi framkvæmdastjóra lækninga á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Framkvæmdastjóri lækninga ber faglega ábyrgð á læknisþjónustu allrar stofnunarinnar, sbr. 10. gr. laga 40/2007. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdastjóri lækninga sinni starfi einnig starfi læknis á heilsugæslu, skurð- og slysadeild og/eða sjúkradeild.

Athygli er vakin á auglýsingum eftir skurðlækni annars vegar og heilsugæslulækni hins vegar, sem birtar eru samhliða.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 250 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á lækningum á stofnuninni
  • Framkvæmdastjóri lækninga situr í framkvæmdastjórn stofnunarinnar
  • Er næsti yfirmaður yfirlæknis heilsugæslu og deildarstjóra fjögurra deilda sjúkrasviðs skv. skipuriti
  • Umsjón með námi læknanema, kandídata og sérnámslækna með yfirlækni heilsugæslu
  • Ábyrgð á utanspítalaþjónustu og hlutverk umdæmislæknis sóttvarna eftir samkomulagi
  • Áætlanagerð, umbætur og þróun starfsemi
  • Samráð við aðrar heilbrigðisstofnanir

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi
  • A.m.k. tveggja ára starfsreynsla í viðkomandi fagi eða veruleg starfs¿ eða stjórnunarreynsla í öðru fagi, doktorspróf eða sérstakur árangur að öðru leyti
  • Framúrskarandi samskiptafærni og góð leiðtogafærni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Drifkrafur og árangursmiðað viðhorf
  • Kunnátta í íslensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Stöðunefnd lækna metur umsækjendur skv. 36. gr. laga 40/2007, sjá einnig umfjöllun á vef Embættis landlæknis, starfsreglur nefndarinnar og verklagsreglur stöðunefndarinnar. Mikilvægt er því að umsókninni fylgi sérprent eða ljósrit af greinum sem umsækjandi hefur skrifað og birt. Þá er umsækjanda heimilt að senda inn meðmæli eða önnur gögn sem votta hvernig hann hefur staðið sig í starfi. Umsögn stöðunefndar byggist á innsendum gögnum. Stöðunefnd getur tekið sér sex vikur til að yfirfara innsendar umsóknir.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum, mati stöðunefndar lækna og umsögnum meðmælenda.

Sjálfstæðið er mikið í starfi en baklandið gott. Tækin eru ný og uppbyggingarhugur í fólki.

Utan vinnu eru lífsgæðin mikil. Tækifærin til útivistar eru allt um kring, enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.

Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar. Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Starfshlutfall er 30-50%

Umsóknarfrestur er til og með 23.05.2022

Nánari upplýsingar veitir

Andri Konráðsson, framkvæmdastjóri lækninga - andri@hvest.is - 450 4500

Smelltu hér til að sækja um starfið

Er hægt að bæta efnið á síðunni?