Grunnskólinn á Suðureyri – Stuðningsfulltrúi

Laust er til umsóknar við Grunnskólann á Suðureyri 45% starf stuðningsfulltrúa. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 19. ágúst 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Í dag eru nemendur Grunnskóla Suðureyrar rúmlega 40 og einkunnarorð skólans eru ástundun, árangur og ánægja.

Starf stuðningsfulltrúa tengist einkum þeim nemendum skólans sem hafa sérþarfir og/eða þurfa á sérkennslu eða á sérstakri aðstoð að halda. Einnig hópum þar sem sérstakrar aðstoðar er þörf. Oftast starfa stuðningsfulltrúar innan bekkja undir verkstjórn kennara og deildarstjóra stoðþjónustu. Til viðbótar eru þeim falin ýmis skólatengd viðfangsefni, eins og gæsla o.þ.h.. Starfið er mjög áhugavert og gefandi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoð og stuðningur við nemendur
  • Eftirfylgni kennsluáætlunar og/eða einstaklingsnámskrár
  • Vinna við ýmis skólatengd verkefni
  • Gæsla nemenda
  • Samstarf við kennara og deildarstjóra stoðþjónustu

Hæfniskröfur:

  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Gott frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Sveigjanleiki
  • Rík þolinmæði og umburðarlyndi
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.

Umsóknum skal skilað til Hrannar Garðarsdóttur skólastjóra á netfangið hronng@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2022. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Allar nánari upplýsingar veitir Hrönn í síma 450-8390 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?