Grunnskóli Önundarfjarðar – Skólaliði

Grunnskóli Önundarfjarðar auglýsir laust til umsóknar starf skólaliða sem jafnframt sinnir dægradvöl. Um er að ræða 100% starf frá 18. ágúst 2022 eða eftir samkomulagi.

 

Skólaliði sinnir ýmsum mikilvægum störfum í skólanum. Hann sér um gæslu á tilteknum svæðum innan- og utanhúss, ræstir tiltekin svæði í skólanum og aðstoðar við framkvæmd skólahalds á ýmsan máta. Starfsmaður dægradvalar sér um faglegt frístundarstarf fyrir 6-9 ára börn að loknum skóladegi.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með nemendum í frímínútum og hléum, úti og inni
  • Gætir nemenda þegar þörf er í kennslustofu eða annarsstaðar sem skólastjórnandi eða viðkomandi kennari óskar eftir
  • Aðstoðar nemendur
  • Sér um daglega ræstingu
  • Fylgir nemendum í mötuneyti og aðstoðar þá þar
  • Aðstoðar við uppröðun og tilfærslu á húsgögnum, tækjum o.fl.
  • Umsjón með kaffistofu, lagar kaffi, setur í uppþvottavél o.fl.
  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að dægradvöl

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
  • Gott frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta

 

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.

 

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað til Kristbjargar Sunnu Reynisdóttur skólastjóra á netfangið Kristbjorgre@isafjordur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst. 

Nánari upplýsingar veitir Kristbjörg í síma 450-8360 eða í gegnum tölvupóst.

 

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

 

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?