FSRE – Verkefnastjóri mannvirkjagerðar
Viltu taka þátt í uppbyggingu innviða í náttúru Íslands? Verkefnastjóri mannvirkjagerðar
Viltu bætast í hóp framsýnna verkefnastjóra sem vinna að því að verja byggðir og skapa aðstöðu fyrir gesti við náttúruperlur Íslands? Um er að ræða starf óháð staðsetningu. Um FSRE: Við hjá FSRE mótum og rekum aðstöðu sem nýtist öllum íbúum landsins með einum eða öðrum hætti. Við önnumst fasteignir og jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og stýrum framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Okkar markmið er að þjónusta ríkisins sé veitt við bestu aðstæður. Við viljum stuðla að framþróun, auknum gæðum og umhverfisvænum áherslum. Framundan eru spennandi tímar í þróun hjá FSRE. Við leitum því að jákvæðu og drífandi fólki sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í vegferðinni með okkur og láta þannig gott af sér leiða í þágu samfélagsins. FSRE býður upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Við brennum fyrir jafnrétti, frábærri vinnustaðamenningu og fjölskylduvænum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sem verkefnastjóri yrðir þú hluti af öflugu teymi sem sér um verkefnastjórn hönnunar- og framkvæmdaverkefna með áherslu á ofanflóðavarnir og uppbyggingu á friðlýstum svæðum. Verkefnastjóri hefur umsjón með hönnunar-, útboðs- og framkvæmdarferli verkefna, tekur þátt í mati á viðhalds- og endurbótaþörf, veitir ráðgjöf og tekur þátt í frumkvæðisverkefnum.
Hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði mannvirkjagerðar; meistaragráða er kostur Reynsla af jarðvegsframkvæmdum er kostur Þekking á aðferðafræði verkefnastjórnunar og farsæl reynsla af verkefnastjórnun framkvæmda á hönnunar- og/eða framkvæmdastigi Reynsla af gerð verk- og kostnaðaráætlana á hönnunar og/eða framkvæmdastigi Ríkir samskiptahæfileikar
Frekari upplýsingar um starfið
Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. FSRE hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um störfin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.