Vísindaport - Skapandi tónlistarvinnustofa og tónleikar í Tasiilaq, Austur-Grænlandi

Föstudaginn  12. janúar hefur Vísindaportið aftur göngu sína á nýju ári á sínum venjulega tíma kl. 12:10. Gestur þessa fyrsta Vísindaports ársins er Jón Gunnar Biering Margeirsson tónlistarmaður og kennari við Tónlistarskólann á Ísafirði. Í erindi sínu mun hann kynna meistaraverkefni sitt í tónlist sem fólst í því að nokkrir tónlistarmenn og kennari ferðuðust til Tasiilaq í Grænlandi og buðu upp á tónlistarvinnustofu fyrir unglinga í samstarfi við grunnskólann í Tasiilaq ásamt því að halda tónleika á staðnum.

Jón Gunnar útskrifaðist með B.Mus. í klassískum gítarleik vorið 2009 og MA gráðu í Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi (Joint Music Master for New Audiences and Innovative Practise (NAIP) frá Listaháskóla Íslands 2011. Hefur hann verið frumkvöðull í þróun og kennslu skapandi tónlistaráfanga sem nú eru kenndir á háskólastigi. Jón Gunnar hefur áður kennt skapandi tónlistarmiðlun við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ og verið bæði stundakennari og aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskólans.  

Jón Gunnar hefur framkvæmt og komið að ýmsum verkefnum á sviði tónlistar, svo sem tónlistarstjórn og undirleik auk þess að semja og útsetja tónlist. Tók hann sem dæmi þátt í uppsetningu Alþýðuóperunnar á Ráðskonuríki (La serva padrona) eftir Pergolesi, í tónlistarhátíðunum Norrænir Músíkdagar og Myrkir músíkdagar og hefur Jóngunnar einnig samið tónlist og hljóðmynd fyrir döff leiksýningu.  

Vísindaportið fer að vanda fram í kaffistofu Háskólaseturs og hefst kl 12:10. Allir velkomnir.