Vísindaport - Frá Suður-Súdan til Flateyrar

Gestur í Vísindaporti vikunnar er Helena Jónsdóttir sálfræðingur. Í erindi sínu mun Helena fjalla um störf sín fyrir Lækna án landamæra, en hún hefur starfað fyrir samtökin í rúm þrjú ár í fjórum löndum: Afganistan, Egyptalandi, Suður-Súdan og Líbanon og mun hún segja sögu sína í máli og myndum frá vettvangi. Helena mun einnig fjalla almennt um Lækna án landamæra, hvernig sækja má um vinnu hjá samtökunum og helstu áskoranir sem í því felast að vinna í ólíkum menningarheimum við erfiðar aðstæður.

Helena er klínískur sálfræðingur að mennt og hafði hún, áður en hún hóf störf fyrir Lækna án landamæra, unnið sem sjálfstætt starfandi sálfræðingur á eigin stofu í 6 ár þar sem hún sérhæfði sig í hugrænni atferlismeðferð við kvíða og þunglyndi. Helena er framkvæmdastjóri nýstofnaðs Lýðháskóla á Flateyri og stoltur nýbúi þorpsins.

Vísindaportið fer fram í kaffistofu Háskólaseturs og hefst kl 12:10. Allir velkomnir.