Vígðu nýja gólfið á Torfnesi

Æfingar eru hafnar á nýja gólfinu í íþróttahúsinu á Torfnesi. Þessar ungu stúlkur og fleiri krakkar úr íþróttaskóla HSV voru svo heppin að fá að vígja nýja gólfið, en í kvöld verða æfingar bæði í körfubolta og í blaki. Á helginni verða síðan keppnisleikir í þessum greinum þar sem reynir almennilega á fjalirnar.