Tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna vegar um Dynjandisheiði

Auglýsing um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna vegar um Dynjandisheiði

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum þann 20. október 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, skv. 31. gr. skipulagslaga 123/2010.

Vegagerðin áformar að endurbyggja veg nr. 60 yfir Dynjandisheiði, frá sveitarfélagsmörkum í Dynjandisvog, með það að markmiði að hann nýtist sem heilsársvegur. Aðalskipulagsbreytingin felur í sér breytingu á legu vegar nr. 60 yfir Dynjandisheiði og fjögur ný efnistökusvæði (E21-E24). Um er að ræða veglínu D úr umhverfismati unnið fyrir Vegagerðina frá 16. mars 2020.

Fylgigögn eru greinargerð ásamt umhverfismatsskýrslu og uppdráttur, Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Breyting á aðalskipulagi vegna vegar um Dynjandisheiði, frá 8. júní 2022, unnið af Verkís ehf.

Tillagan er aðgengileg hér að neðan og á skrifstofum umhverfis- og eignasviðs, 4. hæð Stjórnsýsluhúsinu frá 25. október 2022 til 7. desember 2022.

Greinargerð og umhverfismatsskýrsla

Uppdráttur

Athugasemdir og ábendingar skulu berast til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar, stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði, skriflega eða í tölvupósti á netfangið skipulag@isafjordur.is , eigi síðar en 8. desember 2022.

f.h. skipulagsfulltrúa

Helga Þuríður Magnúsdóttir

verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði