Tilkynning vegna slæmrar veðurspár

Veðurspáin næstu daga er ansi slæm og jafnvel búist við ofsaveðri á Vestfjörðum. Því viljum við benda íbúum Ísafjarðarbæjar á að fylgjast vel með fréttum og tilkynningum hér á vefnum og á Facebook-síðu Ísafjarðarbæjar ef koma skyldi til lokana hjá stofnunum bæjarins.

Strætisvagnar Ísafjarðarbæjar eru með talhólfsnúmer, 878-1012, þar sem fram kemur hvort og þá hvaða ferðir falla niður.

Að auki er vert að minna bæði íbúa og fyrirtækjaeigendur á að huga að lausamunum.