Þingeyri: Áframhaldandi vinna við vatnslögn í dag

Eins og fram kom í gær, mánudaginn 9. nóvember, fór vatnslögn í sundur við lagnavinnu í Aðalstræti á Þingeyri. Unnið verður áfram að viðgerð í dag, þriðjudag, og verður því vatnslaust frá kl. 10 og fram eftir degi.

Uppfært kl. 13:45: Ábendingar hafa borist um að vatnslítið eða vatnslaust sé einnig í Vallargötu á Þingeyri.