Styrkir vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa fólks með fötlun

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 25. grein laga nr. 37/2018 um þjónustu við fólk með fötlun sem er með langvarandi stuðningsþarfir.

Byggðasamlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fólki með fötlun að skapa sér atvinnu.

Umsóknafrestur er til 24. október 2019 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags. Umsóknareyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa eru að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu. 

• Félagsþjónustan við Djúp, Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík, sími 450-7000 / 450-5900 www.bolungarvik.is / www.sudavik.is 

• Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður, sími 450-8000 Umsóknareyðublað

• Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík, sími 451-3510 / 434-7880 Umsóknareyðublað 

• Félagsþjónusta Vestur- Barðastrandarsýslu, Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður, sími 450-2300 / 456-2539 www.vesturbyggd.is / www.talknafjordur.is