Samningur við einleikjahátíðina Act Alone endurnýjaður

Samningur um áframhaldandi stuðning Ísafjarðarbæjar við einleikjahátíðina Act Alone á Suðureyri hefur verið undirritaður. 

Markmið samningsins er að efla og glæða áhuga bæjarbúa á leiklist og auðga menningarlíf í Ísafjarðarbæ, auk þess að efla enn frekar einleikjahátíðina sem haldin er ár hvert á Suðureyri.

Samningurinn er til þriggja ára og felst stuðningur Ísafjarðarbæjar meðal annars í vinnu starfsmanna þjónustumiðstöðvar, láni á eignum sveitarfélagsins og styrk að fjárhæð 700.000 kr.