Óskað eftir tilboðum í endurgerð grunnskólalóðar á Flateyri

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið „Grunnskólinn á Flateyri endurgerð lóðar“. Um er að ræða uppsetningu leiktækja, gróðurbeða, gróðursetningu, uppsetningar girðinga ásamt uppúrgröft, fyllingu og lagningu efra burðarlags .

Helstu stærðir eru:

Regnvatnslagnir                                40 m

Efra burðarlag                                  52 m³

Þökulögn                                        567 m²

Verkinu skal vera að fullu lokið í 22. ágúst 2018.

Útboðsgögn verða til afhendingar á minnislykli hjá Verkís, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði frá og með 18. maí 2018. Tilboðin verða opnuð hjá Verkís í Stjórnsýsluhúsinu, 3. hæð, 29. maí 2018 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.