Ný strætóskýli á Ísafirði

Skýlið á Seljalandsvegi.
Skýlið á Seljalandsvegi.

Tvö ný strætóskýli hafa verið sett upp á Ísafirði. Annars vegar hefur strætóskýlið í Stórholti verið endurnýjað og hins vegar hefur verið sett upp nýtt skýli á Seljalandsvegi, rétt innan við Seljalandsveg 77.

Enn er eftir smávægileg vinna við að ganga frá skýlunum og í kringum þau en þau eru tilbúin til notkunar og munu vonandi skýla strætófarþegum vel á meðan þeir bíða eftir bílnum.

Skýlið í Stórholti.