Ný lóð við Grunnskóla Önundarfjarðar

Samið hefur verið við Heiðarfell ehf. um framkvæmdir við lóð Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri og ættu framkvæmdir að geta hafist fljótlega. Eins og frægt er orðið þurfti að taka ákveðna verkþætti út úr áætlunum, en að mestu leyti verður verkið unnið eins og sést á meðfylgjandi teikningu.