Náttfatasögustund á bókasafninu

Náttfatasögustund með jólaívafi verður á bókasafninu á Ísafirði milli klukkan 13.15 og 14.00 á laugardag. Lesnar verða sögur fyrir börnin og boðið upp á léttar og barnvænar veitingar. Við vonumst til að sjá sem flesta, börn og foreldra, á náttfötunum að sjálfsögðu. Svo skorum við á fólk að setja upp jólasveinahúfur.