Námskeiðið „Konur taka af skarið“

Föstudaginn 15. febrúar verður námskeiðið „Konur taka af skarið“ haldið á Hótel Ísafirði. Námskeiðið er opið öllum þeim konum sem eru félagar í aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins eða BSRB (t.d. VerkVest og FosVest) og stendur milli klukkan 10.30 og 16.30.

Skráning skal berast í síðasta lagi 13. febrúar á netfangið kristinheba@akak.is eða í síma 461 4006. Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.