Lífið í Ísafjarðarbæ á nýju ári — lifid.isafjordur.is

Viltu finna þér eitthvað að gera á nýju ári? Ísafjarðarbær heldur úti sérstökum vef með upplýsingum um viðburði, tómstundir, menningu og félagsstarf í sveitarfélaginu, lifid.isafjordur.is.

Efninu á vefnum er skipt upp í þrjá flokka

  • Íþróttir og tómstundir
  • Menning og listir
  • Hreyfing og útivist

Undir þessum flokkum má finna yfirlit yfir allt frá íþróttaæfingum og -aðstöðu, yfir í upplýsingar um menningarstarf, félagsstarf, söfn, sýningar- og viðburðasali og helstu útivistarstaði. Efnið er flokkað eftir aldurshópum og staðsetningu, eftir því sem við á.

Á forsíðu vefsins er einnig viðburðadagatal sem íbúar eru hvattir til að fylgjast vel með og senda inn viðburði sem eru á döfinni.

Tekið er við ábendingum um viðbætur og lagfæringu á efni á lifid.isafjordur.is á upplysingafulltrui@isafjordur.is