Jólasýning Safnahússins opnar í dag

Hin árlega jólasýning Safnahússins opnar klukkan 17 í dag, föstudag. Í ár hefur starfsfólk hússins lagt sig fram við að skapa notalega jólastemmningu í sal Listasafnsins. Kvennakór Ísafjarðar mun flytja jólalög undir stjórn Beötu Jóo og sagt verður stuttlega frá sýningunni. Það verður heitt á könnunni að vanda – Verið kærlega velkomin!