Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar

Skíðamaðurinn Albert Jónsson úr Skíðafélagi Ísfirðinga var útnefndur íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 í hófi í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði á sunnudag. Þá var knattspyrnumaðurinn Þórður Gunnar Hafþórsson úr Vestra útnefndur efnilegasti íþróttamaðurinn og Harpa Grímsdóttir úr blakdeild Vestra fékk sérstaka viðurkenningu fyrir störf sín í þágu ungmennastarfs. Ísafjarðarbær óskar þremenningunum hjartanlega til hamingju sem og öðrum sem tilnefndir voru til verðlauna.