Ísafjarðarbær hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2020

Sviðsstjórar og bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar við undirritun viljayfirlýsingarinnar.
Sviðsstjórar og bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar við undirritun viljayfirlýsingarinnar.

Ísafjarðarbær er á meðal þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA á stafrænni ráðstefnu og viðurkenningarathöfn Jafnvægisvogarinnar sem haldin var fimmtudaginn 12. nóvember. Fyrr á þessu ári var undirrituð viljayfirlýsing Ísafjarðarbæjar og FKA til næstu fimm ára þar sem Ísfjarðarbær heitir því að vinna að markmiðum Jafnvægisvogarinnar.

Jafnvægisvogin er samstarfsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu, forsætisráðuneytisins, Sjóvá, Deloitte, Pipar/TBWA og Morgunblaðsins. Tilgangur verkefnisins er: 

  • Að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja 40/60
  • Að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir
  • Að veita viðurkenningar og draga fram í sviðljósið fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar
  • Að standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið til hugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis
  • Að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöður

Verkefninu var komið á fót á árinu 2017 og hefur náð að festa sig í sessi sem mikilvægur þáttur í því að vekja fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög til umhugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis með auknum jöfnuði kynja í stjórnunarstöðum.