Ísafjarðarbær hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA annað árið í röð

Ísafjarðarbær hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), á stafrænu ráðstefnunni Jafnrétti er ákvörðun, sem haldin var fimmtudaginn 14. október. Þetta er annað árið í röð sem sveitarfélagið hlýtur viðurkenninguna.

Að verkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, PiparTBWA og Ríkisútvarpið en tilgangur þess er meðal annars:

  • Að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja 40/60
  • Að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir
  • Að veita viðurkenningar og draga fram í sviðljósið fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar
  • Að standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið til hugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis
  • Að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöður

Verkefninu var komið á fót á árinu 2017 og er mikilvægur þáttur í því að vekja fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög til umhugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis með auknum jöfnuði kynja í stjórnunarstöðum.