Úthlutað úr sumarviðburðasjóði hafna Ísafjarðarbæjar
Úthlutað hefur verið úr sumarviðburðasjóði hafna Ísafjarðarbæjar og hlutu 12 verkefni styrk úr sjóðnum. Þetta er í fyrsta sinn sem sjóðurinn veitir styrki og var áhersla lögð á viðburði á tímum er skemmtiferðaskip eru í höfn í sveitarfélaginu. Markmiðið með úthlutununum er að styrkja og bæta bæjarbraginn í tengslum við skemmtiferðaskipakomur.
Fjórðungsþing að vori var haldið miðvikudaginn 10. apríl í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Á fundinum var farið yfir skýrslu stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga og þeirra rekstrareininga sem það ber ábyrgð á. Auk þess fór fram afgreiðsla ársreiknings 2023 og samþykkt endurskoðuð fjárhagsáætlun.
Ísafjarðarbær boðar til fundar um uppbyggingu skíðasvæðanna í Tungudal og Seljalandsdal fimmtudaginn 11. apríl kl.16:30 í fundarsal á 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Öllum sem annt er um skíðasvæðin okkar er velkomið að mæta.