Íbúafundur um Sundabakka og framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa

Ísafjarðarbær boðar til íbúafundar um fyrirhugaðar framkvæmdir við Sundabakka á Ísafirði. Einnig verða kynnt drög að lokaskýrslu starfshóps um framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa.

Fundurinn verður haldinn mánudaginn 28. október á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði og hefst klukkan 20:00. Fundarstjóri er Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri.

Dagskrá:

  • Kynning á fyrirhuguðum framkvæmdum við Sundabakka - Gunnar Páll Eydal, umhverfis- og auðlindafræðingur hjá Verkís
  • Kynning á skýrslu starfshóps um framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa - Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, formaður starfshóps