Íbúafundir Terra um sorphirðu og söfnun endurvinnsluefna

Mynd: www.terra.is
Mynd: www.terra.is

Á þriðjudag 12. nóvember og miðvikudag 13. nóvember fara fram íbúafundir á Ísafirði, Suðureyri, Þingeyri og Flateyri um sorphirðu og söfnun endurvinnsluefna. Arngrímur Sverrisson, rekstrarstjóri Terra, Líf Lárusdóttir, markaðsstjóri Terra og Gunnar Árnason, rekstrarstjóri Terra á Vestfjörðum, verða með myndræna kynningu um starfsemi þeirra, hvaða efni falla undir hvaða flokk og hvað verður síðan um efnin okkar. Farið verður yfir hvers vegna er mikilvægt að skola endurvinnsluefnin, hvað á heima í lífrænu tunnunni og svo gefst tími fyrir spurningar frá fundargestum. Á staðnum verður einnig Ralf Trylla, umhverfisfulltrúi Ísafjarðar.

Við hvetjum áhugasama til að mæta á svæðið. 

Þriðjudagur 12. nóvember

17:30-18:30: Fundarsalur á 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði

20:00-21:00: Félagsheimilið á Suðureyri 

Miðvikudagur 13. nóvember 

17:00-18:00: Blábankinn á Þingeyri

20:00-21:00: Félagsbær á Flateyri