Hundahreinsun 30. nóv. og 1. des.

Árleg hundahreinsun verður í áhaldahúsinu á Ísafirði kl. 16-18 þriðjudaginn 30. nóvember og miðvikudaginn 1. desember

Engrar tímapöntunar er þörf, allir skráðir hundaeigendur geta mætt með hunda sína og fengið þá hreinsaða.

Hundahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi til Ísafjarðarbæjar og er skorað þá sem eiga eftir að ganga frá skráningu að gera það hið fyrsta.

Hunda má skrá í gegnum rafrænan Ísafjarðarbæ eða með eyðublaði.