Grýla í heimsókn

Klukkan 17 í dag, þriðjudaginn 18. desember, má búast við sjálfri Grýlu í heimsókn í Safnahúsið á Ísafirði. Þar mun þessi þekktasta tröllkona landsins koma sér fyrir í sal Listasafnsins á 2. hæð og spjalla við hressa og hugaða krakka á öllum aldri. Eflaust hefur hún frá mörgu að segja, enda hefur hún átt langa og viðburðaríka ævi.