Gámaþjónustan sinnir sorphirðu

Gámaþjónusta Vestfjarða hefur sinnt allri sorphirðu fyrir íbúa sveitarfélagsins frá því á áramótum og hefur sóst verkið vel. Við viljum benda á að allar upplýsingar um þjónustuna, opnunartíma í Funa, sorphirðudagatal og annað má finna á www.gamarvest.is, en í grófum dráttum verður engin breyting á þjónustunni fyrst um sinn.

Nýr kynningarbæklingur verður síðan gefinn út í mars þar sem Gámaþjónustan kynnir nýjar áherslur í sorpflokkun og breytingar á kerfinu og eru íbúar í framhaldinu hvattir til að hafa samband við fyrirtækið eða umhverfisfulltrúa Ísafjarðarbæjar ef eitthvað er óljóst.