Frestur rennur út á laugardag

Við minnum á að frestur á að skila inn umsóknum um styrki til menningarmála, síðari úthlutun ársins 2018, rennur út á laugardag. Umsóknirnar skulu berast til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið thordissif@isafjordur.is. Tekið skal fram að þær umsóknir sem þegar hafa borist eru teknar gildar við síðari úthlutun.

Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála og umsóknareyðublað sem fylla þarf út og skila með umsókn.