Ferð aflýst til Flateyrar/Þingeyrar

Vegna veðurs þarf að aflýsa ferð strætisvagns frá Ísafirði til Flateyrar/Þingeyrar klukkan 15.30 og ferð sama vagns til baka frá Þingeyri klukkan 16.30. Reynt verður að fara ferð til Þingeyrar klukkan 18.00 en farþegum er bent á upplýsingatalhólfið 878-1012.