Er alþýðumenning þjóðararfur?

Málþingið „Er alþýðumenning þjóðararfur“ verður haldið á vegum Byggðasafns Vestfjarða í Edinborgarhúsinu á Ísafirði klukkan 9 til 16 föstudaginn 2. nóvember. Þar verður fjallað um áhrif aukins ferðamannastraums á rekstur opinberra safna og samkeppni þeirra við einkaaðila. Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um varðveislu báta.

Dagskrá málþingsins er svohljóðandi:

9.00 – 10.00        Erik Småland fjallar um varðveislu á bátum í Noregi

10.00 – 11.00     Ágúst Ó. Georgsson fjallar um varðveislu á eldri bátum á Íslandi

10.30 – 10.45     Kaffi

10.45 – 11.15     Jón Sigurpálsson og Björn Erlingsson – Björgunarskútan María Júlía, táknmynd skeytingarleysis

11.15 – 11.45     Jón Jónsson – Hvað er alþýðumenning? Er hún þjóðararfur?

12.00 – 13.00     Hádegishlé

13.00 – 13.30     Einar Kárason – „Án skipa væru engir Íslendingar“

13.30 – 14.00     Guðrún Jónsdóttir – Samspil ferðamennsku og framsetningar á íslenskum menningararfi/alþýðumenningu

14.00 – 14.30     Áki Karlsson – Samtaka í þágu menningararfsins

14.30 – 14.45     Kaffi

14.45 – 15.15     Sigurjón Baldur Hafsteinsson – Hver er leiðin fram á við?

15.15 – 16.00     Samantekt, umræður og helstu niðurstöður

17.30 – 19.00     Munir og mynd. Opnun sýningar í Turnhúsinu. Hönnuður: Jón Sigurpálsson

19.00                 Kvöldverður í Tjöruhúsinu