Blábankinn hlýtur viðurkenningu fyrir nýsköpun í opinberri stjórnsýslu

Blábankinn á Þingeyri
Blábankinn á Þingeyri

Blábankinn, þjónustu og nýsköpunarmiðstöðin á Þingeyri, fékk ásamt þremur öðrum verkefnum sérstaka viðurkenningu fyrir nýsköpun í opinberri stjórnsýslu af 33 tilnefndum.

Blábankinn er samstarfverkefni opinberra aðila og einkaaðila, er það Ísafjarðarbær sem hlýtur viðurkenninguna fyrir sinn þátt í verkefninu.

Hægt er að kynna sér verkefnið á heimasíðu þess, www.blabankinn.is.

Til hamingju allir sem að þessu standa!