Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018

Bolungarvík

Akureyrarkaupstað (Grímsey og Hrísey)

Borgarfjörð eystri

Djúpavog

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu  nr. 17/2018 í Stjórnartíðindum

  • Vesturbyggð (Brjánslækur Patreksfjörður og Bíldudalur)
  • Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur og Ísafjörður)
  • Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. 

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2018.

Fiskistofa 17. janúar 2018