Auglýsing vegna ljósleiðarauppbyggingar í Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarbær telur mikilvægt að ljúka ljósleiðarauppbyggingu í dreifbýli í sveitarfélaginu. Því vinnur sveitarfélagið ásamt samstarfsaðila nú að áætlun um tengingu ljósleiðara inn á staðföng í sveitarfélaginu, sunnan Ísafjarðardjúps, með það að markmiði að koma tengingu á sem víðast.

Við fyrri kannanir um áform markaðsaðila um að tengja staðföng í dreifbýli með a.m.k. 100 Mbps þráðbundinni tengingu innan þriggja ára komu ekki fram staðfestar upplýsingar um slík markaðsáform. Með vísan í fyrri auglýsingar sbr. auglýsingar á vef Póst- og fjarskiptastofnunar, www.pfs.is, er markaðsaðilum hér með aftur gefinn kostur á að upplýsa sveitarfélagið um slík staðfest áform.

Eins er hagsmunaaðilum hér með gefinn kostur á að upplýsa sveitarfélagið um innviði, svo sem rör og strengi, sem viðkomandi vill selja og nýta má til að ná fram ofangreindu markmiði. Óskað er eftir því að upplýsingarnar berist á skrifstofu sveitarfélagsins á netfangið postur@isafjordur.is fyrir lok dags 21. febrúar 2021.