Auglýsing um kjörfund vegna forsetakosninga þann 27. júní 2020

Kjörfundur vegna forsetakosninga í Ísafjarðarbæ verður haldinn þann 27. júní 2020. Kjörfundur hefst kl. 09:00 í öllum kjördeildum og stendur til kl. 21:00 í 1.-3. kjördeild en til kl. 20:00 í 4.-6. kjördeild. Kosið verður á eftirtöldum stöðum:

1.-3. kjördeild í Menntaskólanum á Ísafirði
4. kjördeild í Grunnskólanum á Suðureyri
5. kjördeild í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri
6. kjördeild í Félagsheimilinu á Þingeyri

Kjörskrá liggur frammi til kjördags á skrifstofu Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1 Ísafirði. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað. Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður í Menntaskólanum á Ísafirði. Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 450-4407.

Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar

Björn Davíðsson formaður

Díana Jóhannsdóttir

Kristján Ó Ásvaldsson