Aðstoð vegna áfallastreitu

Á íbúafundum sem haldnir voru á Flateyri, Suðureyri, Ísafirði og í Súðavík vegna snjóflóðanna sem féllu 14. janúar kom fram að áfram yrði unnið með íbúum á svæðinu sem m.a. finna fyrir einkennum áfallastreitu eða glíma við slæma líðan í kjölfar atburðanna.

Þeim íbúum sem þannig er ástatt fyrir er boðið að fá viðtal við sálfræðing. Hægt er að hafa samband við Örnu Ýri Kristinsdóttur í síma 450 8043 eða í netfangið arnakr@isafjordur.is og panta tíma.

Sálfræðingur mun meta stöðuna með viðkomandi með tilliti til áframhaldandi meðferðar-vinnu. Með allar upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál.

Það er aldrei of seint að vinna með áfallastreitu eða aðrar afleiðingar áfalla.

- Samráðshópur áfallahjálpar á Vestfjörðum -