450. fundur bæjarstjórnar

450. fundur bæjarstjórnar verður haldinn 23. janúar í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og hefst klukkan 17:00.

Beina útsendingu af fundinum má finna í spilaranum í hægri dálki hér.

Dagskrá

Almenn mál - umsagnir og vísanir

1. Snjóflóð í Önundarfirði og Súgandafirði 14.1.2020 - 2020010042
Bókun bæjarráðs: Umræður fóru fram. Bæjarráð færir öllum viðbragðs- og björgunaraðilum þakkir fyrir ómetanlegt starf og þakkar einnig sýndan samhug frá landsmönnum öllum. Sérstök ánægja er með þá fyrirhyggju Landhelgisgæslunnar að staðsetja varðskipið Þór á svæðinu gagngert til að bregðast við. 
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir við stjórn Ofanflóðasjóðs að gert verði nýtt hættumat fyrir Flateyri og gerð verði úttekt á möguleikum á endurbótum á varnargörðum ofan Flateyrar. Einnig að skipuð verði hættumatsnefnd fyrir öll hættumöt í Ísafjarðarbæ og þau endurskoðuð. Jafnframt að óskað verði eftir því að Ofanflóðasjóður taki þátt í að verja hafnarmannvirki á Flateyri fyrir snjóflóðum í ljósi mikilvægis mannvirkisins, bæði vegna öryggishlutverks hafnarinnar og að varnarmannvirkin beina snjóflóðum inn á svæðið og auki þar með áhættu þar. 
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir því við Vegagerðina að endurskoða sjóvarnir á Suðureyri. 
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fara í öryggisáhættumat fyrir alla byggðarkjarna sveitarfélagsins í samráði við heimafólk og viðbragðsaðila þar sem mögulegar áhættur verði dregnar upp og viðbrögð við þeim kortlögð og skráð. 
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir við samgönguyfirvöld að komið verði upp upplýstum og upphituðum þyrlupalli á Ísafjarðarflugvelli og aðstöðu fyrir þyrlu á vellinum til að mögulegt sé að þyrla verði staðsett á svæðinu til að stytta viðbragðstíma. Einnig óskar bæjarráð eftir því að skoðaður verði möguleiki á því að þyrla sé staðsett á svæðinu þegar spáð er aftakaveðri eins og var í síðustu viku. 
Mikið starf er fyrir höndum að byggja upp atvinnulíf á Flateyri og bæjarráð væntir þess að fá stuðning frá stjórnvöldum í því verkefni. Til að mynda þarf að treysta Lýðskólann í sessi með föstum fjárframlögum auk þess sem nauðsynlegt er að byggja upp útgerð á ný á Flateyri.

2. Náttúruhamfaratrygging Íslands vegna tjóns á Flateyri 2020 - 2020010059
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skrifa umsögn um málið með hliðsjón af umræðum á fundinum og skipulagsákvæðum. 
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar þar sem bæjarstjórn fer með skipulagsvald í sveitarfélaginu og ekki er gefinn tími til að fjalla um málið í skipulagsnefnd.

3. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að samþykkja viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2020.

4. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að samþykkja viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2020.

Fundargerðir til staðfestingar

5. Bæjarráð - 1089 - 2001006F 
Lögð er fram fundargerð 1089. fundar bæjarráðs sem haldinn var 13. janúar sl. Fundargerðin er í 6 liðum.

6. Bæjarráð - 1090 - 2001009F 
Lögð er fram fundargerð 1090. fundar bæjarráðs sem haldinn var 21. janúar sl. Fundargerðin er í 7 liðum.