433. fundur bæjarstjórnar

433. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 7. mars 2019 og hefst kl. 17:00.

Dagskrá:

Almenn mál

1.

Ósk um deiliskipulagsbreytingu - Hafnarbakki 3, Flateyri - 2018100008

 

Tillaga 515. fundar skipulags- og mannvirkjanefnd um að bæjarstjórn samþykki uppdrátt, dags. 10. desember 2018, vegna breytinga sem tekur til stækkunar byggingareits og hækkunar nýtingahlutfalls á lóð Hafnarbakka 3, Flateyri.

     

2.

Ísafjarðarbær - Óveruleg breyting á Aðalskipulagi 2008-2020 m.t.t. rekstrarleyfa - 2019020069

 

Tillaga 515. fundar skipulags- og mannvirkjanefnd þar sem nefndin til við bæjarstjórn að heimila málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, til þess að gera óverulegar breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðar 2008-2020. Breytingin snýr að áður útgefnum leyfum, þannig að heimilt verði að endurútgefa gistileyfi fyrir starfsemi í flokki II, en ekki verði heimilt að gefa útný leyfi. Þá er jafnframt gert ráð fyrir svigrúmi fyrir verslanir og veitingahús á Hafnarsvæði K1, við Sundahöfn. Hlutfall slíkrar þjónustu skal ekki vera meiri en 20% af nýtingarhlutfalli svæðisins.

     

3.

Afreksbraut við Menntaskólann á Ísafirði - 2018040003

 

Tillaga 1051. fundar bæjarráðs frá 25. febrúar 2019 um að samþykkja samning um afreksíþróttabraut við Menntaskólann á Ísafirði ásamt viðauka við fjárhagsáætlun vegna samningsins.

     

4.

Frístundarúta - 2016090101

 

Á 194. fundi íþrótta- og tómstundanefndar lagði nefndin til við bæjarstjórn að hún samþykki drög að reglum um akstursstyrk til foreldra barna vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar.

     

5.

Atvinnuþátttaka ungs afreksfólks í Ísafjarðarbæ - 2018120079

 

Á 194. fundi íþrótta- og tómstundanefndar lagði nefndin til við bæjarstjórn að komið yrði til móts við ungt afreksfólk í sveitarfélaginu á aldrinum 14-21 ára, sem starfa hjá sveitarfélaginu, þannig að þau verði ekki fyrir tekjutapi vegna þátttöku sinnar í verkefnum og keppni fyrir Íslands hönd. Frekari útfærsla verði í höndum forstöðumanna.

     

Fundargerðir til kynningar

6.

Bæjarráð - 1051 - 1902021F

 

Fundargerð 1051. fundar bæjarráðs sem haldinn var 25. febrúar sl. Fundargerðin er í 11 liðum.

     

7.

Bæjarráð - 1052 - 1902025F

 

Fundargerð 1052. fundar bæjarráðs sem haldinn var 4. mars sl. Fundargerðin er í 10 liðum.

     

8.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 78 - 1903003F

 

Fundargerð 78. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 31. janúar sl. Fundargerðin er í 1 lið.

     

9.

Íþrótta- og tómstundanefnd - 194 - 1902013F

 

Fundargerð 194. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 20. febrúar sl. Fundargerðin er í 7 liðum.

     

10.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 79 - 1903001F

 

Fundargerð 79. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 12. febrúar sl. Fundaregðin var í 1 lið.

     

11.

Velferðarnefnd - 436 - 1902015F

 

Fundargerð 436. fundar velferðarnefndar sem haldinn var 21. febrúar sl. Fundargerðin er í 9 liðum.