419. fundur bæjarstjórnar

419. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 7. júní 2018 og hefst kl. 17:00

Dagskrá:

Almenn mál

1.  

Deiliskipulag - Eyrarskjól - 2018050049

 

Tillaga frá 499. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar frá 23. maí. sl. um að heimila deiliskipulagsvinnu vegna fyrirhugaðrar stækkunar Eyrarskjóls.

     

2.  

Tilkynning um framkvæmd í C flokk - Ljósleiðaralagning Dýrafjörður - 2018050059

 

Tillaga 499. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 23. maí sl. þar sem lagt er til við bæjarstjórn að staðfesta þá niðurstöðu skipulags- og mannvirkjanefndar að ljósleiðaralagning í Dýrafirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.  
 
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 hefur skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila. Niðurstaða nefndarinnar er að strenglagning ljósleiðara í Dýrafirði, sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að staðfesta þá niðurstöðu.

     

3.  

Hnífsdalsvegur 13 - Umsókn um stækkun lóðar - 2018050005

 

Tillaga 499. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 23. maí. sl. um að heimila stækkun lóðar við Hnífsdalsveg nr. 13, skv. lóðablaði frá Tæknideild Ísafjarðarbæjar, dags. 22.maí 2018.

     

4.  

Skeiði 10 - Umsókn um lóð - 2018050044

 

Tillaga 499. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 23. maí sl. um að G.E. Vinnuvélar fái lóð inn á Skeiði 10, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.  
Fyrri lóðarúthlutun við Skeiði 16 er felld úr gildi og verður lóðin auglýst að nýju.

     

5.  

Vallargata, Þingeyri - Fyrirspurn um lóð - 2018010124

 

Tillaga 499. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 23. maí sl. um að heimila stofnun lóðar, nefndin leggur til að stofnun lóðar verði grenndarkynnt fyrir íbúum við Vallargötu 33 og Aðalstræti 55 og 57.

     

6.  

Úttekt frárennslislagna - 2016110066

 

Tillaga 499. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 23. maí sl. þar sem mælst er til að viðtakar verði flokkaðir nánar m.t.t. vistkerfis, með mælingum og greiningum á persónueiningum. Mikilvægt er að hugað sé að því að mótuð verði stefna sem tekur á því að strandsvæði í nágrenni þéttbýlis, verði nýtt fyrir matvælaframleiðslu í framtíðinni. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að áfram verði unnið með efni skýrslunnar til að hægt sé að meta þörfina á aðgerðum í frárennslismálum.

     

7.  

Skýrsla nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu - 2014080062

 

Tillaga 1019. fundar bæjarráðs frá 4. júní sl., um að skýrsla nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu verði lögð fyrir fund bæjarstjórnar.  
 
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að tillögur nefndarinnar verði samþykktar.

     

Fundargerðir til kynningar

8.  

Bæjarráð - 1018 - 1805021F

 

Fundargerð 1018. fundar bæjarráðs sem haldinn var 28. maí sl. Fundargerðin er í 20 liðum.

     

9.  

Bæjarráð - 1019 - 1806001F

 

Fundargerð 1019. fundar bæjarráðs sem haldinn var 4. júní sl. Fundargerðin er í 6 liðum.

     

10.  

Fræðslunefnd - 392 - 1805020F

 

Fundargerð 392. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 24. maí sl. Fundargerðin er í 8 liðum.

     

11.  

Íþrótta- og tómstundanefnd - 185 - 1805014F

 

Fundargerð 185. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 16. maí sl. Fundargerðin er í 4 liðum.

     

12.  

Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu - 8 - 1805022F

 

Fundargerð 8. fundar nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu, sem haldinn var 23. maí sl. Fundargerðin er í 1 lið.

     

13.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 499 - 1805012F

 

Fundargerð 499. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 23. maí sl. Fundargerðin er í 7 liðum.

     

14.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 500 - 1805025F

 

Fundargerð 500. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 30. maí sl. Fundargerðin er í 34 liðum.

     

15.  

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 66 - 1805003F

 

Fundargerð 66. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 22. maí sl. Fundargerðin er í 3 liðum.

     

16.  

Velferðarnefnd - 428 - 1805013F

 

Fundargerð 428. fundar velferðarnefndar sem haldinn var 15. maí sl. Fundargerðin er í 3 liðum.

     

17.  

Öldungaráð - 9 - 1805016F

 

Fundargerð 9. fundar öldungaráðs sem haldinn var 16. maí sl. Fundargerðin er í 3 liðum.

     

 

Ísafjarðarbær, 6. júní 2018

Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.