415. fundur bæjarstjórnar

415. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 15. mars 2018 og hefst kl. 17:00.

Dagskrá:

Almenn mál

1.  

Torfnes - Nýtt Deiliskipulag - 2017030092

 

Tillaga 494. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 7. mars sl., um að samþykkja tillögu Verkís frá 19. júlí 2017, að óverulegri breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis á Torfnesi.

 

   

2.  

Hafnarbakki 1. Umsókn um lóð fyrir atvinnuhúsnæði - 2018020057

 

Tillaga 494. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 7. mars sl., um að samþykkja að Walvis ehf. fái lóð við Hafnarbakka 3 skv. núgildandi skipulagi og umsókn með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

 

   

3.  

Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar - yfirlit fyrir 415. fund bæjarstjórnar - 2018020003

 

Lagt fram minnisblað Hjördísar Þráinsdóttur, skjalastjóra, dagsett 13. mars sl., með yfirliti yfir frumvörp og þingsályktunartillögur sem hafa verið send Ísafjarðarbæ til umsagnar frá síðasta fundi bæjastjórnar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

4.  

Bæjarráð - 1008 - 1803002F

 

Fundargerð 1008. fundar bæjarráðs sem haldinn var 5. mars sl. Fundargerðin er í 14 liðum.

 

   

5.  

Bæjarráð - 1009 - 1803007F

 

Fundargerð 1009. fundar bæjarráðs sem haldinn var 12. mars sl. Fundargerðin er í 19 liðum.

 

   

6.  

Fræðslunefnd - 389 - 1802017F

 

Fundargerð 389. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 1. mars sl. Fundargerðin er í 8 liðum.

 

   

7.  

Íþrótta- og tómstundanefnd - 183 - 1803003F

 

Fundargerð 183. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 7. mars sl. Fundargerðin er í 6 liðum.

 

   

8.  

Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu - 7 - 1802025F

 

Fundargerð 7. fundar nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu sem haldinn var 8. mars sl. Fundargerðin er í 2 liðum.

 

   

9.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 494 - 1802012F

 

Fundargerð 494. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 7. mars sl. Fundargerðin er í 9 liðum.

 

   

10.  

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 62 - 1802022F

 

Fundargerð 62. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 6. mars sl. Fundargerðin er í 5 liðum.

 

   

Ísafjarðarbær, 13. mars 2018

Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri