Staðardagskrá 21 fyrir Ísafjarðarbæ
Sjálfbær þróun er þróun sem gerir okkur kleift að mæta þörfum okkar án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta sínum þörfum.
- Gro Harlem Brundtland, 1987.
Staðardagskrá 21 - bakgrunnur
Á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó 1992 samþykktu fulltrúar 179 þjóða ályktun sem nefnd hefur verið Dagskrá 21 (Agenda 21).
Þar er kveðið á um að sérhvert ríki skuli gera áætlun um þróun umhverfismála fram á næstu öld.
Áætlunin taki til vistfræðilegra, efnahagslegra og félagslegra þátta og hafi markmiðið um sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Ísland var eitt þeirra ríkja sem samþykkti
Dagskrá 21 á ráðstefnunni í Ríó. Hins vegar er þetta skjal ekki þjóðréttarlega bindandi, en litið er á samþykktina sem siðferðilegan og pólitískt bindandi gjörning.
Í kjölfar síðustu sveitarstjórnarkosninga var skipuð staðardagskrárnefnd í Ísafjarðarbæ sem tók formlega við starfi stýrihóps sem unnið hafði frá haustinu 1999
að undirbúningi SD21.
Áætlun SD21 fyrir Ísafjarðarbæ
Unnið er samkvæmt eftirfarandi áætlun:
- Núverandi staða skilgreind
- Sett eru fram markmið og áhrif þeirra á umhverfi og fjárhag skilgreind
- Gerðar eru starfs- og tímaáætlanir
- Áform í umhverfismálum eru framkvæmd
- Starfið er endurmetið
Búið er að skilgreina núverandi stöðu og byrjað að skilgreina markmið og huga að framkvæmdaáætlun.
Málaflokkar
Meðal þeirra málaflokka sem tekið er á eru:
-
Holræsi og fráveitumál
-
Úrgangur frá heimilum og fyrirtækjum
-
Mengun
-
Gæði neysluvatns
-
Hávaði og loftmengun
-
Menningarminjar og náttúruvernd
-
Umhverfisfræðsla í skólum
-
Orkusparnaður
-
Varnir gegn meindýrum
-
Samfélagsgerð og lýðræði
-
Skipulagsmál/umferð
-
Ísafjarðarbær – opinber innkaup
-
Auðlindanotkun
Sá heimur sem við höfum skapað með hugsun okkar, stendur frammi fyrir vandamálum sem við getum ekki leyst nema með nýrri hugsun.
- Albert Einstein
